Drónaupptökur

Rewind hefur sérhæft sig í drónaupptökum frá árinu 2014 og býr yfir áralangri reynslu af loftmyndatöku við fjölbreytt verkefni.

Við notum DJI Mavic 4 Pro, öflugan dróna með háþróaðri myndavél sem skilar einstaklega skörpu og vönduðu myndefni í háum myndgæðum.

Við bjóðum upp á áhrifamiklar loftmyndir og myndskeið fyrir auglýsingar, fyrirtækjamyndbönd, fasteignir, viðburði og önnur kvikmyndaverkefni.

Með faglegum búnaði, reynslu og næmu auga fyrir sjónrænni frásögn sköpum við myndefni sem gefur hverju verkefni nýja vídd.