Brúðkaup

Hvað er gert?

Undirbúningurinn ykkar um morgunin er myndaður og þá er fylgst með hárgreiðslu og förðun brúðar og leitast við að fanga stemminguna og eftirvæntinguna hjá öllum. Einnig er litið við hjá brúðguma og svaramanni  með þeirra undirbúning. Athöfnin er öll tekin upp. Byrjað er um hálftíma áður en þá eru brúðgumi og svaramaður mættir og gestir að fara koma. Venjulega tekur ljósmyndari myndir milli athafnarinnar og veislu og þá gefast oft fín tækifæri á að ná stemmings-, eða listrænum vídeóskotum. Í veislunni eru öll atriði tekin upp og endað fljótlega eftir að kakan hefur verið skorin og fyrsti dansinn stiginn.  
Eftirvinnslan felst í klippingu á milli tökuvéla, litaleiðrétting, hljóðsetning og tónlist. Afhent á tölvutæku formi en þannig fást mestu myndgæði. 

Hvað fæ ég í hendurnar:

 

Afhent er fullunnið efni á tölvutæku formi sem spilast í flestum sjónvörpum og tölvum. Meiri myndgæði nást með þessu móti.

Þið fáið: 

-Athöfnina í heild og það helsta úr veislunni
-Hápunktasyrpa (3-5 mín)

Þarf video af brúðkaupinu?

Á meðan ljósmyndir fanga augnablik tímans þá fangar vídeóið tímann sjálfann.  Að sjá og heyra söng eða heillaóskir og ræður frá ykkar nánustu ættingjum og kæru vinum er ómetanleg minning sem varðveitist um ókomna tíð.

Verður truflun af upptökunum? 

 

Lítið fer fyrir upptökubúnaðinum og upptökuaðferðin er þannig að hún hefur ekki áhrif á atburðarrásina.  Svo er komið fyrir föstum smávélum sem ganga allan tíman án þess að á þær þurfi að líta á. Mætt er um hálftíma fyrir afthöfn til að gera allt klárt.

Placeholder